Útihlaup og margt fleira (:
Halló ! (;
Já nú líður að jólum, ég er ekki búin að kaupa neinar jólagjafir né klára neinar sem ég ætla að búa til, en það kemur allt :d
Í dag var miiikil rigning !
Það hætti næstum því bara ekki að rigna d:
en já, í dag fór ég líka á hlaupaæfingu x)
við hlupum 2.5 kílómetra og ég var þriðja. Ég er bara mjög glöð með árangurinn, hljóp alla leiðina :D
Í gær fór ég í tónlistaskólann. Það var ekki tónfræði útaf einhverjum tónleikum svo að ég fór bara í píanó tíma. Reyndar var beðið mig um að mæta hálftíma fyrr svo að ég mætti hálf sex í staðinn fyrir sex. Ég var að æfa jólalög (:
Undanfarna daga hef ég bara verið á æfingum og á msn, líka að leika smá við vinkonur mínar en ekki jafn mikið. Þegar ég kem heim af æfingum vil ég helst eiginlega bara hvíla mig.. en ég er með fuuullt af sænskum krökkum inná msn og það er svo skemmtilegt að tala við þau..
Við ætlum einhvern tímann að reyna að hittast ;)
Úff, vitið þið hvað mig langar alveg óóóóótrúlega mikið að gera ?
Nei, örugglega ekki. En mig langar svo mikið að skrifa bók og semja lag :)
Það er svo skemmtilegt að gera þannig :')
Jæja, ég ætla að hvíla mig aðeins í að skrifa og fara að læra fyrir íslensku prófið. Ég skrifa seinna aftur <3
Knús og kossar ;*
-dagmarólafsdóttir